Sannir Íslendingar og þjóðargersemi.

Ég hef alltaf verið stoltur af að vera Íslendingur, en ég hef aldrei grátið af stolti líkt og þegnar annarra landa hafa upplifað þegar landslið þeirra vinnur afrek á sviði íþrótta. Að gráta af stolti er ein sú magnaðasta tilfinning sem ég hef upplifað og fyrir það eitt verð ég þessum stórkostlega hópi einstakra afreksmanna ævinlega þakklátur.


mbl.is „Ísland tekur Frakkar á bólið"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Snorri skorar ekki....

...þá vinnum við ekki. Svo einfalt er það bara. Í síðustu keppni var það Ólafur og nú er það Snorri sem dregur vagninn. Þetta fyrirkomulag gengur ekki. Liðsheildin og þjálfarinn þurfa að breyta þessu hið snarasta.
mbl.is Ísland tapaði með einu marki fyrir Suður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi erum við ekki lengur bestir.....

..gegn þeim bestu, heldur orðnir svo góðir að við erum í raun bestir. Ég vil og ætla að trúa því! Það verður gaman að sjá þessa snillinga keyra yfir S.Kóreu, og þegar því verkefni er lokið þá er allt hægt.
mbl.is Ísland fór hamförum gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir bankar pynta íslenska lántakendur, túsjei!!

Nú ættu þessir ræflar að vita hvernig okkur er búið að líða síðastliðna áratugi! Eitthvað segir mér nú samt að þeir munu ekkert læra af pyndingum matsfyrirtækjanna, heldur fyllast kvalarlosta í okkar garð.
mbl.is „Matsfyrirtæki pynta íslenska banka"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Real Madrid, Harlem Globetrotters Evrópu??

Já einmitt, hverjum langar ekki að enda feril sinn hjá samnefnara Harlem Globetrotters?? Maðurinn er heilalaus ef hann semur við þetta "jóklið", hann á að fara þangað þegar ferillinn er að verða búinn, ekki fyrr.


mbl.is Carloz Tevez: Leyfið Ronaldo að fara til Real Madrid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sleppur hann þá??

Fyrst hann gat ekki blásið í mæli lögreglunar? Eru vinnureglurnar ekki þannig að maður blæs fyrst og ef maður fellur á blástursprófinu, þá fá þeir fullt og ótakmarkað leyfi til að sjúgja úr manni blóðið, ekki fyrr. Enginn blástur, enginn plástur á upphandlegginn:-).
mbl.is Of drukkinn til að blása í mæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítið, samt land hinna öfugu!

Þeir keyra öfugu megin, rúllustigarnir eru öfugu megin við okkar, það er allt öfugt við Bretland, en smá samkynhneigð opinberuð og allt verður vitlaust!! Útskýrið það fyrir mér eins og ég sé 5 ára????
mbl.is McKellen hótað lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skildi þetta vera gott jobb???

Mér er spurn?
mbl.is Mótmælabúðir á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er eitthvað að!!!

Mér finnst að Hr. Björn ætti að byrja á að senda lögregluna í þjálfunarbúðir. Tökum dæmið fyrir þar sem 70 ára maður var tekinn með 200 kg af eiturlyfjum. Útskýrðu fyrir mér Hr. Björn, hví í ósköpunum menn þínir ákváðu að taka aflóga gamalmenni höndum, og sleppa þeim sem stóðu að innflutningnum. Við vitum öll að gamli maðurinn var bara burðardýr. Í svona málum eru lögin skýr, ef það hefði verið samið við gamla manninn áður en leitað var í bílnum þá hefði hann væntanlega gefið upp vitorðsmenn sína, en eftir að búið er að leita og finna ólögleg efni í bílnum, þá er ekki lengur hægt að semja við manninn því það er ólöglegt, og hinir eiginlegu eiturlyfjasalar sleppa og og fara á "plan B", gamall maður mun deyja í íslensku fangelsi sökum þessa slóðaháttar. Annað sem mér finnst skrítið Hr. Björn, hví í andskotanum biðu fréttamenn í Lögreglustöðinni á Seyðisfirði? Hvernig vissu þeir af smyglinu? Útskýrðu það fyrir mér eins og að ég sé 6 ára!!!
mbl.is Aukin umsvif glæpahópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússland-Þýskaland, athyglisvert!!!

Skyldu Rússarnir dúlbúast líkt og forðum daga þegar Þjóðverjarnir heimsóttu þá síðast. Ég sé þá fyrir mér í fagurgrænum búningum sem falla að grasinu líkt og þeir væru klæddir í gras og Þjóðverjarnir mæta í Boss jakkafötum, líkt og þeir gerðu í seinni heimsstyrjöldinni. En að öllu gamni slepptu, þá leika bæði lið í hvítu og það lið sem fær að leika í hvíta búningnum, vinnur, það segir hefðin.
mbl.is Hiddink: Heppnir að vera hérna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband