Svona eiga menn að vera..

....þetta hefði Ronaldo átt að segja, en í staðinn daðraði hann við Madrid og eyðilagði þar með ferilinn sinn hjá MU. Ef Ferguson fær Sneijder, þá er MU ekki í verri málum, og jafnvel betri, því ef einhver getur mótað snillinga í að verða ofursnillingar, þá er það Ferguson. Sneijder er heppinn ef hann fer yfir í skiptum því Madrid kaupir bara snillinga, þeir kunna ekki að búa þá til.
mbl.is Sneijder: Ég fer ekki til United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Porsche, góðir bílar hjá vondu umboði.

Já, umboðið er vont, Bílabúð Benna er rekið að hjólhýsapakki sem hefur ekki gagnfræðaskólapróf hvað þá einhver önnur próf, nema þá ef það telst með prófið sem þeir hafa í glæpamennsku, því þeir víla ekki fyrir sér að ljúga og svindla ef þeir geta grætt þúsund kall á því. Vont umboð, illa rekið, mun aldrei versla þarna. Þú ættir ekki að gera það heldur.
mbl.is Porsche bilar minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsæriskenningin mín!!!

Getur það verið að þessi bárátta Demókratanna Clinton og Obama sé í raun úthugsuð markaðsherferð! Þau tvö hafa hertekið hvert einasta blað og allar sjónvarpsstöðvar í BNA, almenningur þar hlýtur að þekkja þau betur en nokkurn annan, Repuplikanarnir hafa ekki sést og þeir halda að Demókratarnir séu alveg að missa sig og hlakka til kosninganna. En þegar að kosningum kemur þá verður Obama búinn að tilkynna að Frú Clinton verði varaforseti og hverja þekkir almenningur best í BNA? Repuplikanarnir munu ekki hlægja þá. Sveimér þá ef þetta er ekki það sem vakti fyrir þeim, SNILLD!! Algjör snilld, og ef ekki, þá er þetta samt snilld, óvart!!
mbl.is Clinton mun játa sig sigraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur verið að um hringrás...

sé að ræða, maðurinn lemur konunna heima og hún lætur einhverja rudda lemja hann úti á götu, hann kemur heim og sagan endurtekur sig. Humm, gæti verið ástæðan, þeir kannski rannsaka það næst.
mbl.is Konur barðar heima en karlar á götum úti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pútin hinn mikli,

nú er hann bæði Forseti og forsætisráðherra Rússlands, því allir vita að Medvedev er bara mennsk strengjabrúða. Þetta hlýtur að vera einsdæmi í lýðveldissögunni og verður væntanlega aldrei endurtekið í komandi framtíð. Ja hérna, ég er svo hissa, ég sæi Bush reyna þetta!!
mbl.is Medvedev sver embættiseið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég sé hann fyrir mér sem næsti stjóri...

stolts Englands, já þú gast þér rétt til, Queens Park Rangers, en ég held að hann endi samt hjá Barcelona, hann endar að lokum hjá einu af mínum liðum, en mér skilst að Zizu taki við stolti Englands og hann mun stýra því til stórtitils innan 3 ára, ég held að það ætti ekki að vefjast fyrir neinum.
mbl.is Mourinho: Sé eftir því að hafa ekki farið fyrr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja Frank...

heldur þú að liðið þitt haldi dampi í meir en 30 mínútur í kvöld. Því oftar sem maður sér góða unga þjálfara kikna undan álaginu sem fylgir því að vera í fremstu víglínu, fæ ég alltaf meiri og sterkari virðingu fyrir Alex Fergusyni. Ég tel að þar fari Foringi og snillingur sem aldrei virðist missa virðingu leikmanna né annarra sem að honum koma. Alex er búinn að vera í fremstu röð í 20 ár, þegar aðrir hafa kiknað í hnjáliðunum eftir 2 til 3. Ég er ekki MU aðdáandi, en ég er Alex Ferguson aðdáandi, og ber djúpa virðingu fyrir honum. Ég og mínir menn munu mæta MU eftir u.þ.b. viku og við munum tapa, ég vona að þeir sýni okkur smá miskunn og leyfi okkur að halda því örlitla stolti sem við eigum eftir.
mbl.is Eiður í hópnum gegn Espanyol
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er þetta búið hjá Krötunum!

Ég sá fyrir mér að Frú Clinton væri sú eina sem ætti einhvern séns í McCain því Obama á engan séns. Skítkast Clintons og Obama hafa sært Demókrataflokkinn helsári, og nú er þetta búið hjá þeim.

Til hamingju McCain, þú verður næsti forseti BNA, önnur leiðinleg 4 ár eru í uppsiglingu.


mbl.is Fleiri veðja nú á Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú, hvernig kók?

Tvíræð fyrirsögn, mjög fyndin. Meira að þessu.
mbl.is „Afi, löggan gaf mér kók"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymdu þeir að minnast á það helvítin?

Jæja minn kæri, stjóri Hull City fékk sömu óskipanir, og hann óhlýðnaðist. Hví óhlýðnaðist þú ekki einnig, það hefði enginn erft það við þig. Eða ertu kannski að plata?
mbl.is Avram Grant: Enginn sagði mér að ég yrði að vinna bikar á tímabilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband