Sendum Björn Inga fyrir hönd Íslands!

Eitthvað segir mér það að Björn Ingi sé sérfræðingur í handríðingum, mikill expert. Allir góðir handríðarar hafa sérþekkingu í að læðast aftan að fólki og gera því bilt við, það er nauðsynlegt til að komast upp með handrið þegar enginn sér. Einnig eru góðir handríðarar graðir, þeir verða vera graðir, og Björn Ingi er eitt graðasta kvikindi sem ég hef heyrt um, einnig sannar sagan það, graðir menn stinga vini sína í bakið.

Styðjum Björn Inga til sigurs!!!!


mbl.is Danmerkurmót í sjálfsfróun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott...

að hann hafi verið að vinka með þessum útlim sínum í stað annars, og þá er ég ekki að tala um fæturna.
mbl.is Missti handlegginn eftir að vinka stelpum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar barn myrðir barn??

Hvað gerðist í uppeldinu, eða á maður kannski að spyrja frekar hvað sé að gerast í uppeldi yfirleitt? Það er ekki langt síðan að fullorðinn maður myrti 9 mánaða gamalt barn af sömu sökum, barnið tjáði sig með þeim eina hætti sem það kann, það grét og þurfti að gjalda fyrir það með lífi sínu. En hvað er að þegar barn myrðir barn, á að rétta yfir barninu og dæma það í fangelsi. Hvað fer í gegnum huga á 12 ára gömlu barni sem hefur verið dæmt í fangelsi fyrir morð á öðru barni?? Væri ekki betra að fara í rótina og finna ástæðu fyrir afhverju þessi harmleikur átti sér stað til að koma í veg fyrir annan eins harmleik, þegar fullorðinn þjófur er dæmdur í fangelsi fyrir þjófnað, þá stöðvar það ekki annan þjóf að reyna stela og komast upp með það, og þarna er ég að tala um fullorðna einstaklinga.
Nei, að dæma barn í fangelsi er glæpur, hreinn og tær glæpur. jafnvel verri en sá sem barnið framdi. Kæru Bandaríkjamenn, farið í rótina og komið í veg fyrir annan svona harmleik í stað þess að gera eitthvað svona heimskulegt eins og að dæma barn í fangelsi, því ekki viljið þið að börnin ykkar fari að reyna komast upp með svona glæpi, því það er næsta skref.

Megi Guðs englar vaka yfir þessum börnum


mbl.is Talinn hafa barið 17 mánaða gamla stúlku til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona eiga Forsetar að vera.

Töffari og alveg spólgraður, þetta er alvöru Forseti, ekki ólíkur okkar Ólafi, konan er meira segja af auðugum ættum og eldklár, svo ekki sé minnst á fegurðina. Sarkozy á eftir að vera góður Forseti, graðir Forsetar eru betri en þessir geldu, sjáið fíflið hann Bush, ég efast um að hann r.... sér í sturtu, enda getur hann ekkert.

Til hamingju Frakkar, stórt typpi!!


mbl.is Sarkozy og Bruni gift?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hann fyrstur??

Hann var tvímælanalaust fyrstur niður án þess að deyja, en greyið hann Mallory, minni mig að hafa heitið, var talinn og er talinn hafa verið fyrstur á tindinn, en hann kom dauður niður og gat því ekki sannað það. En mér hefur fundist Mallory ekki hafa notið þeirrar virðingar sem hann hefði átt skilið. Fór hann ekki upp í kringum 1904 eða 1914, ég man það ekki alveg, en búnaður hans var vægast sagt frumstæður og með ólíkindum að menn hafi yfirleitt reynt þetta þá, enda þegar Mallory var spurður afhverju, þá svaraði hann með þessum eilífu orðum. "Because it is there".

Hvíl í friði Hillary, nú getur þú sest niður með Mallory og fengið það beint frá kúnni hver var fyrstur.


mbl.is Edmund Hillary minnst í Nepal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litla stúlkan með eldspýturnar.

Vesalings Britney, telur að allur heimurinn sé á móti sér. Hún sér ekki heiminn fyrir ljósaflassi og mannþvögu, svo það er ekkert skrítið þó að hún haldi að allir séu á móti sér, því í raun þá eru við það, þótt við gerum okkur ekki grein fyrir því. Allir hafa sína skoðun á henni, þótt við höfum ekki leyfi til að dæma hana, þá gerum við það samt. Ég hef reynt að verja hana en ég hef líka dæmt hana. Ég get ekki annað en grátið með henni, því það sem hún er að fara í gegnum á hverjum degi, er svipað og slæmt ár hjá mér. Þetta minnir mig á gamla sögu, og ég vona að hún endi ekki eins, ein og yfirgefin, nema hún á ekki bara eldspýtur til að ylja sér með, heldur peninga líka, og allt er þetta skammgóður vermir, eldspýturnar vilja öngvir, en peningana vilja allir, og til að fá yl, þarf hún að greiða öllum í kringum sig. Hrúðurkarlarnir sem nærast á henni, eiga eftir að deyða hana að lokum ef þetta heldur svona áfram. Ef þú lest þetta Britney, þá þykir mér bara vænt um þig og ég vona að þú finnir það sem þú leitar að, en það er erfitt að finna eitthvað með fólk vaðandi ofan í kokinu á sér alla daga. Þess vegna finnur hún friðinn í flöskunni og dópinu, ljósmyndarar taka af því myndir, fréttamenn geta sér til um það sem þeir sjá á myndinni, blaðið birtir myndina og fréttina, við lesum fréttina og skoðum myndina, síðan dæmum við, og sagan heldur áfram. Ég er alsæll með að vera óbreyttur bloggari á Íslandi, enginn að bögga mig nema einn og einn sem hefur einhverjar athugasemdir fram að færa og þegar þær verða fleiri en 3, þá líður mér eins og Britney, einn á móti öllum.
mbl.is Mikilvægur dagur hjá Britney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða þýðingu hefur farbann???

Ég veit til þess að glæpamenn í farbanni hafi komist úr landi, hví ætti þessi ekki að geta farið úr landi og komist undan þessum svívirðilega og hræðilega glæp, eitthvað segir mér að ef Íslendingur í Póllandi væri grunaður um svipaðaðan glæp, þá væri ekki sett á hann farbann, mig grunar að það yrði sett á hann fóta og handjárn. Annað sem truflar mig, hvernig er hægt að lifa venjulegu lífi dags daglega með þetta á samviskunni, hvernig er það hægt??. Ég er algjörlega orðlaus yfir því, og ég veit ekki einu sinni hvort mig langar að vita það

Megi Guðs englar vaka yfir foreldrum barnsins, þau eiga alla mína samúð.


mbl.is Farbann framlengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skorar hann!

Nú er komið að Eiði að skora fyrir okkur Barca aðdáendur, ég skora á þig Eiður að skora, og það væri ekki verra ef þú reyndir að hafa markið doldið flott, svona "hoppauppúrsófanumflott". Þá skal ég kyssa sjónvarpið þegar enginn sér.
mbl.is Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur gerst fyrir mig ótal sinnum!!!!

En oftast hefur löggan ekki trúað mér sama hvaða hvolpaaugu ég hef sett upp. Einu sinni tók hún mig við afleggjarann við Saltvík á Kjalarnesi, og þá var ég búinn að setja viðvörunarbúnað í bílinn ef hann skildi festast í botni og löggurnar væru að athuga með bíla sem væru að festast í botni. En það var ekki að sökum að spyrja, bíllinn festist í botni á 176 km hraða og sama hvað ég reyndi, þá sögðu löggurnar mér að svona bílar festust aldrei í botni, bara svona menn festu bílana sína í botni, og það viljandi. Ég var próflaus í 3 mánuði og síðan þá hefur bíllinn bara orðið fastur einu sinni og þá var löggan víðs fjarri, sem betur fer fyrir mig en ef einhver lögga hefði gripið mig, þá hefði sú lögga verið hækkuð í tign og saga hennar verið sú vinsælasta á kaffistofu lögreglustöðvarinnar um ókomna tíð.
mbl.is Bensíngjöfin festist í botni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

What about Bob??

Fáum við karlarnir ekki að koma á þetta ball, við erum viðhöld líka, og skrambi góð meira að segja, eða svo hef ég heyrt:-) Ég fæ kannski kjól af mömmu lánaðan og skelli mér á ballið, það er hvort eð er haldið í Hreppnum svo ég ætti að geta blandað mér inn með hinum tveim úr Tungunum.
mbl.is Frumlegasta hjákonan verðlaunuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband