Er minnimáttarkenndin alveg að fara...

með vesalings Bretana einnig, það er skiljanlegt með Danina, en hvað skreið upp í rassgatið á Bretanum? Nú er hann alveg að missa sig í minnimáttarkenndinni, vita þessir menn ekki að við erum bara lítil saklaus stórhuga þjóð sem langar að gleypa allan heiminn!!
mbl.is Íslandi bjargað!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á hverju er Gaukur að bragða núna?

Ja, maður spyr sig. Súrt meðal, örugglega vont á bragðið!
mbl.is Leyfði honum að bragða eigin meðal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skildi hann hafa verið svona kynkaldur?

Gæti það hafa verið ástæðan. Kerlingunni hefur þótt karl of kynkaldur svo hún hefur ákveðið að skella frostlög á karlinn í von um betra hjónalíf. Slæm ákvörðun, ekki góð!
mbl.is Eitraði fyrir manni sínum með frostlegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífsgleði Annþórs...

er Lögreglunni í Reykjavík væntanlega mjög hugleikin í dag. Ef Annþór væri ekki svona skrambi lífsglaður, þá hefði hann getað notað þennan kaðal sem hann fann í geymslu Hverfisteins til annars en að strjúka. Lögreglan hefði litið öðruvísi út en ef kaðallinn hefði verið notaður á annan máta.
mbl.is Annþór kominn í leitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir margra alda ímugust..

þá loksins urðu þær vinsælar. Nú elur maður þá von í brjósti að einn daginn gerist þetta fyrir mig, verð vinsæll eins og París Hilton og fleiri:-).
mbl.is Rottukjöt vinsælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æla, gubb og æla!!

Ef Þetta fífl hélt að bandaríska þjóðin myndi kjósa hann fyrir að ganga inn í rústir Twin Towers á milli þess sem hann var upptekinn við tökur af einhverri Hollywood mynd, þá myndi ég skjóta mig!


mbl.is Giuliani hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krossfarar 21 aldarinnar!!!

Húrra fyrir ykkur, vá hvað þið eruð frábærir, en hverja eruð þið að verja hálfvitarnir ykkar?? Mér verður óglatt af svona hálfvitum!!! Hr. Morgunblað!! Takk fyrir að birta þessa frétt, þið hafið bjargað mér frá Vísindakirkjunni,, ekki!!! Er fólk að missa vitið í þessum vesala heim okkar. Hættið tafarlaust öllum heimskulegum árásum á trú annarra. Reynum að drullast til að bera virðingu fyrir trú annarra, þá kannski kemst friður á. En það er kannski ekki það sem við viljum?
mbl.is Hakkarar ráðast á vef Vísindakirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viltu vita meira???

Lestu þá einhverja góða bók. Leyfðu slúðurblaðafíflunum í útlöndum að drepa þessa stelpu! Ef þetta er fréttin sem þú lest í dag, þá ættir þú að finna þér eitthvað að gera, vinna væri góð byrjun.

Ekki hringja í mig samt, ég hef ekki áhuga!!!


mbl.is Britney flutt á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slátrun, en ekki stríð!!

Er ekki stríðið löngu búið? Ég veit ekki betur en að það hafi bara staðið í fáeina daga, síðan þá hefur bara slátrun átt sér stað. Írakar að slátra sjálfum sér og öðrum fyrir "málstaðinn"!!??? Það eru ár og dagar síðan ég hætti að skilja þetta "stríð", jafnvel þótt ég setji bílinn minn í gang á hverjum degi, jafnvel oft á dag, þá er þetta mér hulin ráðgáta. Kannski ræður hin gamla góða enska setning ferðinni, en hún hljómar svona, "ignorance is bliss"!!!!
mbl.is Yfir milljón Íraka hefur látið lífið af völdum stríðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi vinnur hann...

ekki!!!! Þessi spænski ökuþór er örugglega eitt mesta fífl í heimi. Mér þætti ekki ólíklegt þótt allir sálfræðingar og geðlæknar heims myndu vilja kíkja inn í kollinn á þessu fífli, Mér verður óglatt þegar ég les svona fréttir.
mbl.is Ökumaður krefur fjölskyldu látins reiðhjólamanns um bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband