Stela öllu steini léttara!!!

Nú er búið að stela öllu, það er ekki hægt að toppa þetta, nema þá ef einhver nær að laumast burt með Frelssistyttuna. Nú hljóta allir þjófar heims að vera grænir af öfund yfir þessum þjófnaði, svona rán hljóta allir alvöru gefnir og metnaðarfullir þjófar vilja hafa á sinni samvisku, í raun ætti að taka þetta rán og ramma það inn í fallegan ramma og hengja það upp í Louvre, svo fallegt og ótrúlegt er það. Það sem mig hlakkar mest til, er þegar það næst til þjófana, því það hlýtur að vera erfitt að þegja yfir svona list, en kannski ekki, ég sé fyrir mér einn þjófinn á einhverjum bar að reyna telja einhverri stúlkunnu trú um þetta. Kannski þarf hinn fullkomni glæpur að vera svona ótrúlegur til að ekki komist upp um hann, og sama hvað menn reyndu til að sannfæra aðra um tilvist hans, myndu bara gera hann enn ótrúlegri.


mbl.is Baðströnd stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert J. Eiríksson

6000 Rúmmetrar af sandi vikta nú "aðeins" meira en "steinn"

Smá útursnúningur sorry ..

Jólin bara

Kv EJE

Eggert J. Eiríksson, 22.12.2007 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband