Einar, komdu heim!!

Einar, komdu heim og taktu Led Zeppelin með þér, þú býrð nánast við hliðina á þeim og svo hafa þeir komið hingað áður. Þú getur sagt þeim að það sé búið að stækka Laugardalshöllina gríðarlega frá því að þeir voru hér síðast, einnig að nú sé miklu meira úrval af eiturlyfjum en áður, (þeir eru væntanlega hættir öllu slíku), en jæja, það er samt raunin. Lokkaðu þá hingað með þinni yndislega væmnu rödd, það er eins og að þú hafir ekki gert það áður!!!
Þeir Íslendingar sem enn hafa sítt hár síðan 1970 gætu t.d. fengið frítt inn, eða fengið 10% afslátt, þú ræður!
En ég fæ frítt inn, því að ég fattaði upp á þessu.
Sjáumst í Höllinni!!!
mbl.is Orðrómur um aðra tónleika Led Zeppelin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reyndar held ég að Led Zeppelin gætu fyllt Laugardalshöllina 5 sinnum í röð, enda eru þeir þvílíkir ofur risar og konungar í rokkinu.

Stefán (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband