Hér er smá..

..ljóð til okkar sem komin eru á hrörnunarstigið.

Þegar þú finnur til andlegrar hrörnunar,
og líkir þér við róna.
Horfðu þá á stjörnunar,
en ekki nður á skóna.


mbl.is Andlega hrörnunin byrjar við 27 ára aldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mig langar að berja þessa menn!!

Ég iða í skinninu að taka þessa andskota og flengja þá og síðan lemja til óbóta, þeir eiga ekkert annað skilið. Ég mun styðja þann flokk sem ákveður að taka á þessum málum, því ef við fáum ekki þessa peninga til baka, þá mun einhver af þessum þjófum verða annað hvort hálfdrepinn eða lemstraður til æviloka af múgnum, jæja, eða mér.
mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Metnaðargjarn kokkur eða þá hitt þó heldur!

Ef maður hefur einhvern snefil af metnaðargirni, þá þegir maður og gerir betur, ef hann gat náð sér í eina, þá getur hann náð sér í aðra. Það er ekki auðvelt að vera á toppnum, það er bara fyrir hina hörðustu, hinir aumu baða út höndunum, væla og kenna öðrum um hrakfarir sínar. Ég ber djúpa virðingu fyrir þeim sem vilja vera bestir og halda sér á toppnum, því það er auðveldara að vera á botninum en á toppnum, það vita þeir sem hafa verið þar.
mbl.is Óvelkomin stjörnugjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Piltar í Buffaloskóm valda usla.

Sá sem stundar einelti er haldinn mjög alvarlegri minnimáttarkennd, svo alvarlegri að Actavis og íslensk erfðagreining ættu að búa til pillu við kvillanum og þeir munu mokselja hana á Selfossi. Afhverju Selfossi? Jú, á Selfossi seldust Buffaló-skórnir betur en á nokkrum öðrum stað á landinu, og þeir eru enn að seljast, sem sannar mál mitt. Ef þú veist ekki hvað Buffaló-skór eru, þá voru þetta skór og eru, sem bættu fáeinum cm við þann sem bar þá. Þarf eitthvað að orðlengja það meir?
mbl.is Einelti látið viðgangast á Selfossi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki eigandinn eiinn af útrásarvíkingunum forheimsku?

Gamli Kolkrabbinn er eins og lítill skólastrákur samanborið við þessa herramenn.  Það var þó hægt að rífa kjaft við Kolkrabbann sálugua, hann reif bara kjaft tilbaka, og þar endaði það yfirleitt.  Svona yfirmannsháttur segir manni bara eitt.  Forstjórinn er orðinn vænusjúkur, og ætti að taka sér frí.


mbl.is Bloggari rekinn fyrir skrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkviliðið fór og skildi brunaliðið eftir til að....

..kveikja í!! Það vita allir almennilegir slökkviliðsmenn að það má aldrei skilja brunaliðið eitt eftir, sá siður hefur eitthvað vafist um fyrir þessum ágætu Japönum.:-)
mbl.is Slökkvistöð í ljósum logum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látum Benna Ólsara rukka inn þessa peninga..

..fyrir okkur. Hvernig væri að láta hann handrukka Sigurð Einarsson og Co? Ég tel að þetta sé okkar eini möguleiki til heimta þetta fé okkar tilbaka. Klikkuð hugmynd, en samt ekki ef við spáum í það.
mbl.is Milljarðalán skömmu fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einmitt!!??

Er verið að gera grín að gáfum kjósenda? Skoðum næstu skoðannakönnum, prestó, fylgi Samfylkingar rýkur upp. Þökk sé??????
mbl.is Ingibjörg Sólrún: Afsögn Björgvins kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Datt engum í hug að...

...kannski var sjálfbjargarviðleitni þeirra engin. Kannski drukknuðu þeir í eigin aumingjaskap? Athugið það snillingarnir ykkar!!!
mbl.is Kurteisir Bretar sukku með Titanic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem skitu upp á bak á sér.......

..ætla núna að fara kenna okkur hvernig á að nota skeinipappír. Nei takk, sama og þegið.
mbl.is „Allt kemur til greina"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband